Mér finnst þetta frekar slæmt… Þetta er akkúrat ástæðan fyrir því að fólk hefur fordóma fyrir húðflúrum og götum (ein af þeim allavega)
Þetta útlit, gothic yfirbragðið… Svona sá t.d. mamma mín mig fyrir mér þegar ég byrjaði að fá mér tattoo, en ég er langt frá því að vera goth.
Það eru ekkert allir sem fá sér húðflúr og göt svona útlítandi, en samt eru margir sem tengja þetta alltaf saman.
Ég vil samt líka taka það fram að ég hef ekkert á móti goth, er bara á móti alhæfingum um að það sé bein tenging á milli þess og húðflúra/gata.
Erfitt að útskýra án munnlegra orða :)