sko mig langar rosalega í tunnel, en mér finnst ekki flott þegar gatið er bara svona lítið.. ég vil það stórt!! en fyrst vil ég vita ef ég fæ mér svona stórt gengur þetta alveg til baka? hvað fynnst ykkur um svona stórt tunnel? ætti ég að slá til :D
Þetta fer sumum vel. Mér sýnist þetta t.d. fara manneskjunni bara ágætlega. En þegar það er orðið eins og frisbídiskur [eins og t.d. Bear er með] þá finnst mér þetta orðið aaaðeins of mikið. En meina, whatever floats your boat.
Ég held að það mesta sem ég myndi fara í væri kannski 15-20mm. Sýnist þetta vera á bilinu 40-50mm.
Þetta fer pottþétt ekki öllum… Ef þú vilt fá eðlilega eyrnasnepla aftur þá myndi ég ekki teygja svona mikið því það ólíklegt að svona stór göt skreppi e-ð mikið saman.
mér finnst þetta geðveikt flott tunnel.. fer allaveganna þessari stelpu (sýnist mér).. oftast finnst mér samt svona stórt tunnel ógeðfellt og ógeðslegt :)..
Mér finnst að þú ættir ekki að slá til þar sem að svona stórt tunnel grær ekki aftur saman á réttan hátt.. og þú myndir af öllum líkindum enda með ljóta eyrnasnepla :/
Svo eins og ég sagði finnst mér þetta í 99% tilfella ógeðfellt ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..