Ég er að fíla bæði götin nema mér finnst septum hringurinn frekar þykkur og grófur. Finnst flottara þegar stelpur eru með lítinn og nettan septum hring ;)
Jú kannski, en ég hef séð margar stelpur með septum, bæði stóra og litla lokka og eins og þær voru misjafnar þá fannst mér samt alltaf flottara þessir litlu lokkar.. Hitt er alveg flott, bara ekki eins flott og þessir minni :) En þetta er auðvitað bara mitt álit og það var ekki ætlunin að móðga þig ef þú hefur tekið því þannig ;)
Neinei, ég tek engu sem móðgun. Málið er það bara að septum gatið mitt var það eina sem ég var með í dálítinn tíma, og ég fékk leyfi til að fá það þegar ég var 15 ára, og fékk síðan ekki að fá nein önnur göt eftir það. Ég var búin að hafa áhuga á götun og öllu því tengdu frá því ég var 12 ára. Og fyrst ég mátti ekki fá mér fleiri göt, ákvað ég bara að láta stækka septumið.
Súrblaðkaður, Sigurvin. Það er kannski afþví ég var að setja þetta í bara um daginn og ég er ekkert búin að vera í Hólminum nýlega? Venjulega bara búin að vera með byssukúlueyrnalokka í þessu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..