Þú getur eflaust beðið hana um að rökstyðja þessa skoðun en það er í raun ekkert sem segir að hún þurfi að gera það. Mér finnst bara kjánalegt hvað fólk lætur svona komment, sem eru eingöngu skoðanir annarra (hvernig sem þær eru orðaðar, eða rökstuddar og þetta er ekki einusinni svo slæmt tilfelli!) fara svona í taugarnar á sér og fara að gagnrýna manneskju og koma með jafn barnaleg komment á móti jafnvel. Láttu svona ekki fara í taugarnar á þér, henni finnst þetta kannski ljótt og veit ekki einusinni afhverju.
Persónulega finnst mér þetta mjög flott í sjálfu sér, en hrikalega ljótt á handlegg á manneskju kannski. Æðislegir litir, æðislegar teikningar en ekki sem tattoo.