Hvað þýða tattoo á Íslandi eru þau bara einhvað skraut eða hafa þau einhverja meiri þýðingu á bakvið sig?
- Það eru mismunandi merkingar bakvið tattú hjá fólki, þá í flestum tilfellum eru ástæðurnar bakvið tattúið persónulegar :) Nema jú það koma dæmi þarsem fólk fær sér tattú sem hefur enga merkingu bakvið sig. Öll mín tattú hafa merkingu, tilfinningalegamerkingu bakvið sig nema það sem ég fæ mér næst haha =)
Afhverju fær fólk sér tattoo?
- Þetta er bara löngun fyrir mér í raun og veru, mér finnst frábært að geta fest minningar, tilfinningar og persónulega hluti á líkamann, þetta verður fjandi fínt ef maður verður fyrir minnisleysi líka :P Þá getur maður reynt að finna út lífið sitt út frá tattúum :) Svo hef ég líka rosalegann áhuga á menningunni sem er í kringum þetta :)
Hver eru vandamálin með tattoo á Íslandi?
Fólk veit ekki alveg hvað það á að halda um þetta, það er rosalega mikið um fordóma, tattú eru vanalega tengd við vandræði, rétt eins og göt. Það er rosalega lítið um það að góði gæinn í biómyndum sé útataður í tattúum. Það er nú vanalega vondi gaurinn.
Ef eitthvað, þá mætti opna fyrir jákvæðar umræður í tengslum við tattú núna í dag =)
~ Systematic, Sympathetic