farðu í bónus og kauptu Neutral sápuna sem fæst þar (hvítur stór dunkur) hún er góð afþví það eru engin ilm og litarefni í henni.
þegar þú tekur plastið af er best að fara í sturtu og reyna að ná sem mestu af blekinu sem er búið að leka útum allt af og setja svo smá Helosan á flúrið þegar þú ert búinn að þurrka það. Passaðu bara að nota mjúkt handklæði og alls ekki nudda því uppvið flúrið, heldur bara leggja það ofaná til þess að þurrka.
Engin ástæða til að vera með paranóju einhverja, bara passa að klóra þér ekki mikið í þessu því þú vilt ekki rífa þetta upp. Í rauninni er þetta bara sár sem þarf að gróa