Hvernig er það með göt í eyru (semsagt ekki standard lobe bara) - kostar þetta allt heilann 5000 kall og Industrial 8-10.000 kall? Mig langar voða mikið að hafa rangt fyrir mér..
Ég skil nú alveg 5000 kall fyrir líkams-og andlitsgöt. Sætti mig við það fyrir löngu síðan, sé ekkert eftir því að hafa borgað 5000 kall fyrir nefgatið mitt. En fyrr gata ég eyrun á mér sjálf áður en ég borga heilar 5000 krónur fyrir það, þó að ég vilji það helst ekki (er algjör auli þegar kemur að svona stöffi)
Mér skilst nú að þetta sé komið yfir 5000kall. Geirvörtugat á T&S kostar held ég 6þús.
Samkvæmt mínum útreikningum þá er hægt að fá nál á 50kall, og lokk 250. Það þýðir að gatarinn tekur 5300 fyrir 10mín vinnu, sem mér finnst of mikið. En það er auðvitað bara mitt álit.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..