naflagat hjálp
Ég er búin að hafa gat í naflanum í 6 mánuði núna. Ég hef tekið eftir því að það myndast lína fyrir ofan lokkinn og á sumum stelpum sem hafa lengi haft lokk, þá er komin mjög stór krumpulína fyrir ofan lokkinn. Verður maginn á mér núna krumpaður útaf lokknum? Þetta er kannski kjánalegt hjá mér en ég er smá hrædd um þetta.