What, er heimurinn orðinn þroskaheftur
Hvað í fjandanum kemur það yfirvöldum við að einhver drengstauli gati fólk, ég gataði tugi manns, þar á meðal sjálfan mig áður en ég var 16. Ég mundi frekar reyna að gefa drengnum ráðleggingar um að gera þetta vel.
Ef allir sem fiktuðu við að stinga göt á fólk hefðu verið kærðir til yfirvalda (sem ég nenni nú ekki að fara nánar út í hvað mér finnst um hér) þá væru engir piercerar og body-modar í dag, einhvers staðar þarf fólk að byrja, og flestir lærðir piercerar sem ég hef talað við byrjuðu einmitt á því að stinga í sjálfa sig og vini sína heima hjá sér. Það er heldur ekkert auðvelt að komast í læri hjá piercerum því þeir eru svo lokaður hópur og hræddir við samkeppni, þannig mér finnst það ekkert nema stórkostlegt að einhver sé að gera þetta, pönkast í kerfinu.
Aftur á móti væri ráðlegt að tala við drenginn áður en maður fær sér gat hjá honum, vera viss um að hann viti hvað hann er að gera og sé með góð tól í það.
Ég hef stungið á milli 150 og 200 göt um ævina, ekki mikill fjöldi, en nóg til að ég geti sagt ykkur að þetta eru engin geimvísindi svo lengi sem maður veit aðeins um líkamann, hvar taugar og viðkvæmir staðir eru, og tækin sem þú notar skipta næstum meiri máli en þekking.