Ég efast líka um að Jón Páll myndi taka þetta að sér nema þetta sé stórt. Getur tékkað á Svani á Tattoo og Skart og Jóni Þór. Jón er með stofu á Hverfisgötunni, en ég man ekki hvað stofan heitir. Ég hef góða reynslu af þeim báðum svo ég mæli hiklaust með því að þú tékkir á þeim.
Hef oft fengið mér tattoo hjá sverri/jason og þegar það eru flóknar myndir í umræðu, hvort sem að ég spyr eða einhver annar þá spyr hann alltaf Jason fyrst hvort hann nenni ekki að gera það frekar… hann tekur að sér frekar einfaldar myndir/tribal/stafi… það er allavega það sem ég hef upplifað.
haha okey, en nú er enginn jason til að draga hann að landi :) hvað gerir sverrir þá :O hann allavega er hálfnaður með stórt halfsleeve á mig með meiriháttar detail í japönskum stíl :)
þar sem þetta er hugi ætla ég að tilkynna hér með að nýja undirskriftin mín er eftirfarandi:
haha já ég vissi það reyndar alveg enda með 6flúr eftir hann hehe en ég var bara að spá því að doddikallinn segir hér að ofan: “en nú er enginn jason til að draga hann að landi :) hvað gerir sverrir þá :O”
þannig að ég var að panikka yfir því að jason væri bara horfinn :D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..