Ég mæli hiklaust með Jason, er með tvö flúr eftir hann, og annað þeirra er einmitt minningartattoo. Hann er mjög vandvirkur og fínn, mín eru bæði jafn fín núna eins og þau voru fyrsta daginn, þurfti ekkert að láta laga og litavalið hjá honum er æðislegt.
Kíktu bara við hjá Jason og Svedda í Black Diamond á Laugarveginum og spjallaðu við þá um hvað þú ert að spá :)