Ok, ég var með 6mm tunnel og langar aftur í, er með 3mm í núna. (Sem ég kom í eyrnasneplana á mér svona 8 mánuðum eftir að ég tók 6mm úr, áttu ekki götin að gróa saman?..og já ekki nóg með það heldur kem ég þessum lokkum í gegn!1)

Annars, mig langar aftur í 6mm en þori ekki ef þetta skyldi nú ekki gróa aftur. Svo er eins og gatið í hægra meginu sé rifið. Ætla reyndar til Sessu og sjá hvað hún segir eeen einhver hérna hlýtur að vita eitthvað um þetta.

Svo langar mig líka að vita, ef tunnel grær ekki saman, er þá að meina svona lítil, er ekki hægt að laga einhvern veginn? Án þess að láta eyrnasneplana vera eins og snúður.