já ég er sammála þér,
ég hef alla tíð verið voðalega fordómafull á svona heimaflúrara og litið heimaflúrun ofsalegu hornauga, einfaldlega af því að það er heimaflúrun og af því að ég hef séð verk eftir svona fólk og þau eru alveg mörg hver hryllileg.
svo er ég sjálf að leita mér að flúrara og fann bara hjá sjálfri mér að ég treysti varla neinum flúraranum hérna. Ég hafði hugsað mér flúrara á stofu í Kef en hann flutti svo erlendis núna í byrjun árs, svo það fór út um gluggann, þá spurði ég Búra sem er fullbókaður fram í ágúst þegar hann fer út, og ég reyndi að fara að ræða við Jason en þar eru þeir bara með opið eftir hentisemi og ég nenni ekki að eltast við svoleiðis leti, auk þess sem ég svona… fíla ekki fullkomlega stílinn hans Jason á köflum.
þá fann ég heimaflúrara sem ég er mjög hrifin af, hann er búinn að læra af gaur í USA svo þetta er ekki einhver shabby gaur sem er eitthvað að dunda sér á vini sína, og flúrin sem ég hef séð eftir hann eru mjög fín, auk þess sem ég hef bara heyrt góða gagnrýni og jákvætt tal um hreinlæti ofl. honum tengdum.
talaði svo við þennan flúrara og hann er ofsalega jákvæður og fínn, sem ég fíla líka.
hérna eru flúr eftir þennan gaur
http://viewmorepics.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewPicture&friendID=4983702&albumId=1224640ég held ég sé eiginlega búin að “settle” in á að fá hann til að flúra mig…svona geta view-in breyst.