Viljið þið segja mér, sem eruð með gat eða voruð með… allt sem ég þyrfti að vita ef ég ætla að fá mér gat í tunguna :-) hverjir gallarnir eru og bara allt sem ykkur dettur í hug takk fyri
Ekki borða neitt heitt í svona 1 viku er ráðlagt og ekkert hart. Jógurt og annað fljótandi er mjög gott. Nota munnskol á milli þegar þú ert búin að borða. Ég reyki svo ég skolaði alltaf með vatni eftir að ég var búin að reykja enda súper paranoid manneskja um sýkingar. Annars þegar þú ferð á t&s tildæmis þá lætur hún þig fá miða yfir helstu atriðum til að koma í veg fyrir sýkingar og hvernig á að meðhöndla gatið.
gallinn við öll göt nálægt munninum eru kækirnir sem maður getur fengið, og ekkert jafn pirrandi og að týna þessum lokkum , kostirnir, eru sjaldann eitthverjir kostir við göt nema það að manni fynst það flott, og ef þú ert einsog ég og mjög margir eru þá gerir þig ekkert jafn glaða/nn að koma af stofu með nýtt gat.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..