ég fékk mitt fyrsta gat(helix) 3. jan. og er að spá hve lengi sársaukinn verður? vakna oft á morgnana alveg að sálast í kringum gatið og það er sárt að snerta :S
Þetta er oftast nokkra mánuði að lagast alveg. Ég fékk mitt fyrsta helix í október 2007 og það lagaðist ekki fyrr en um 4-5 mánuðum seinna. Svo gerði ég annað í október 2008, haha fyndin tilviljun, en já mér er ennþá mjög illt þar oft. þú þarft að bíða miiiklu lengur en nokkra daga vinan (:
Bætt við 5. janúar 2009 - 15:48 eða vinurinn, whatever. xD
Ég mæli líka með því að þú reynir að sofa á þeirri hlið sem helixið er ekki í og reyna sem minnstan pirring og svoleiðis. Ég var með svolítið óþægilegan lokk (bara venjulegan eyrnalokk) og hann rakst alltaf utan í hettuna í hettupeysunni minni og svoleiðis, en núna er ég búin að skipta yfir í hring og það er miiiklu þægilegra (:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..