Það labbaði eitthver snargeðveik kona að mér um á laugardaginn síðasta þar sem að ég sat í strætóskýli, og spurði mig hvort að ég ætlaði ekki bara að fá mér gat í endaþarminn næst.
Ég horfði á hana í smá stund til að átta mig svona fullkomnlega á því hvað hún sagði og svaraði
‘ha?’
Þá réttir hún út hendina og grípur í neflokkinn minn (er með hring) og segir við mig (gargar meira samt)
‘Já maður veit ekki hvað þið vandræðaunglingarnir gerið næst þegar að þið eruð byrjuð á svona viðbjóði’
Svo fór hún að tala um hárið mitt og augnmálinguna mína n'sutch en talaði þó mest um neflokkinn minn og jú, eyrun á mér.. sem að mér fanst svolítið sérstakt þar sem að ég var ekki með neina lokka í eyrunum þennan dag.

Ég slapp samt, á endanum, afþví að strætóinn minn kom. Þó að ég var að verða geðveik af því að sitja þarna og hlusta á hana segja hvað hún vorkenndi foreldrum mínum og ömmu minni og afa og þannig.. en hún var like, gömul kona. Svo að ég þagði.


Hafið eflaust eitthver ykkar lent í eitthverju svona,
care to share?