nei ég myndi ekki segja það, ég er árinu eldri en þú og fékk mér 2 tattú í fyrra og ég sé svo alls ekki neitt eftir þeim, samt voru það svosem ekki þýðingarmikil þegar ég fékk þau, ég fékk þau í bara svona algjöru djók kasti með vinkonu minni, okkur fannst þetta nógu hallærislegt til að það væri kúl og gerðum það svo bara. Það var æðislegt og varð til þess að þetta algjörlega djók tattú varð að einhverju sem að er mjög þýðingarmikið í dag.
Ég elska tattúin mín og ég elska að horfa á þau, ég yrði rosalega sár ef að þau myndu bara allt í einu hverfa eitthvað eða eitthvað svoleiðis ef þú skilur mig.