Ég er með einstaklega vel heppnað og fallegt gat í nebbanum /stolt
Það hefur alltaf allt gegnið alveg einstaklega vel með mitt og aldrei neitt major vesen, FYRR en að mér hvarflaði í hug að kaupa mér lokk úr læknastáli, en það er víst eitthvað pínusmá nikkel í því og þá tók minn blessaði nebbi bara heljarstökk afturábak og ég fékk þessa líka bara heiftarlegu sýkingu.
Því miður gat ég ekki tekið lokkin strax úr vegna þess að titanum hringurinn minn var of þykkur, þar sem sýkingingin gerði það að verkum að gatið minnkaði heilann helling, enda var nýji lokkurinn talsvert mjórri.
Svo ég fór með mína bullandi, fossandi sýkingu niður á tattú og skart og lét aðeins teygja á því (sem ég ætla að vona að ég þrufi aldrei aftur að gera, fokk vont) og fékk blessaða titanum lokkinn minn aftur og mitt nebbagat fór aftur í sitt fullkomna far.
-Viss um að þetta sé ekki bara nikkelofnæmi?
Já ég er nokkuð viss, því Sessa veit að ég má ekki vera með nikkel, brenndi mig á því í industrial piercinginu mínu allhressilega, shit hvað það var slæmt. Þetta var orðið hálfur cm, mamma kallaði þetta vörtu, og, einmitt, vætlaði úr ef ég hreyfði, ég þoldi ekki við lengur . Skrýtið.
0