Hmmm.. ég veit ekki mikið um þetta… ég var hinsvegar virkilega hrifin af hálf-ermi sem Chip frá Bandaríkjunum gerði hjá frænda mínum. Chip var semsagt gestaflúrari á House Of Pain (Black Diamond Tattoo) og hann og Jason gerðu svona ‘collaboration’ ermi á frænda minn :) Innifalið í hlutanum hans Chip var lagfæring á gömlu klúðri eftir Fjölni, og mér finnst þetta bara hafa tekist nokkuð vel :)
Tjah, ég er með ermi í vinnslu hjá Jóni Páli, og það er biomech í henni (alveg töluvert meira að segja), og mér finnst allavegana teikningin af biomech hlutanum svo flott að ég myndi nánast kalla þetta kynæsandi!
Annars hef ég ekki séð neina íslenska flúrara gera biomech, en efast ekki um að þeir geti það.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..