Þeir fáu sem ég þekki til sem vinna við þetta byrjuðu jú á sínum tíma á því að stinga í sjálfa sig og vini, í mörgum tilfellum með öryggisnál!!!
U.þ.b. helmingurinn af mínum götum eru líka gerð af mér og hef aldrei lent í veseni með þau, enda kynni ég mér allar hliðar á því sem ég er að gera og fer mjög professional að, og ef fólk gerir það þannig er jú ekkert að því.
En mig langar líka til að læra þetta, því ég þori ekki að gera margt annað en eyrnagötin, langar ekkert voðalega til að rústa einhverjum taugum í andlitinu á mér, hef séð fólk sem er lamað í hálfu andlitinu eftir að hafa stungið í augabrúnina á sér.
En það er nánast ómögulegt að komast í læripláss og námskeiðin sem eru haldin í USA eru alltof dýr fyrir mig, þannig ég held bara áfram að gata eyru