Ég lét skjóta fyrsta gatinu mínu í snepil 13 ára, og á næstu 2 árum stakk vinur minn 1 gat í snepilinn minn og ég stakk 2 í hinn snepilinn, 1 í brjóskið og 2 í brjóskið hinumegin auk nefloks sem var skotið í. Bætti svo geirvörtulokk við sjálfur 15 ára.
Tók svo allt úr þegar ég var 18 vegna of margra óhappa í mosh pittum, en sá eftir því á hverjum degi þar til ég, nokkrum árum, og nógu mörgum mosh pittum til að ég væri kominn með leið á þeim, seinna, þá setti ég allt í aftur nema neflokkinn og bætti svo við það.
Mér fannst ég samt ekkert vera of ungur, og í Danmörku hef ég hitt marga krakka, mest pönkara en ekki allir þó, alveg niðrí 10 með helling af lokkum og nælum á furðulegustu stöðum. Mér finnst það mjög cool svo lengi sem þetta er meðvituð lífstílsákvörðun sem það hefur verið hjá flestum þeim sem ég hef spjallað við.
Sá líka einn í kringlunni um daginn sem leit ekki út fyrir að vera meira en 10-12 ára og með 3 göt í neðri vör, nokkur í eyrum og tunnel sem voru 10-12mm. Meiriháttar flott og mig hlakkar til að sjá hvernig hann lítur út eftir 10 á