hefur eitthver hér fengið heiftarlega sýkingu og þurft að fara til læknis? annahvort útaf tattoo eða götum?? sérstaklega tungugötum ! er að reyna að finna e-ð afsökun til að tala mig af því að fá mér gat í tunguna hehe
Var í Búlgaríu í fyrrasumar og við vorum 3 sem fengum okkur flúr og einn þeirra fékk einhverjar bólur á flúrið sitt og þurfti að fara til læknis. Það var örugglega út af því að hann bar ALLT OF MIKIÐ af shitti á það… ekki gott. En það reddaðist allt, fékk sýklalyf eða e-ð og flúrið skaddaðist ekkert eða neitt=)
Vinkona mín fékk sér flúr á íslandi í fyrrasumar, þriðja flúrið hennar. En hún fékk svakaleg ofnæmisviðbrögð, fyrst var það svaka bjúgur, svo byrjuðu að koma blöðrur og vessi og eitthvað úr flúrinu… Hún þurfti að fara nokkrum sinnum á dag uppá slysó að fá sýklalyf í æð, í nokkra daga.
Flúrið lúkkar mjög vel í dag, sést ekki að það hafi verið neitt vesen, en hún ætlar aldrei að fá sér flúr aftur :P
Ekki sýking.., en fór eitt sinn að fá mér gat í vörina. og kúlan á lokknum var blý föst. og þar sem gatið var nýtt þá var það allt bólgið. og þurfti að skipta um lokk því hann var of stuttur fór fyrst uppá tattoo og skart. og þær náðu kúluni ekki úr þannig þurfti að fara uppá slysó og þar var notað skæri og klippur, ): en var þess virði.nú er ég með snakebites *proud*
ég hef þrisvar verið með gat í nefninu (nostril piercing) og ég held ég hafi fengið sýkingu í öll skiptin, enda mjög viðkvæmt fyrir sýkingum.
Í fyrsta skiptið fékk ég sýkingu en það pirraði mig ekki það mikið þannig að ég hafði gatið í alveg tvö ár.
Í annað skiptið entist gatið ekki lengi því ég nennti ekki að hafa sýkingu.
Í þriðja skiptið ætlaði ég mér að láta þetta ganga og það gekk mjög vel þangað til ég fékk svona blóðbólu við gatið. Ég þraukaði með risastóra blóðbólu á andlitinu í alveg tvær vikur og fór síðan til læknis sem sagði mér að þetta myndi fara sjálft á endanum…. ég beið í aðra viku og nennti þessu svo ekki lengur, enda ekkert rosalega fallegt að vera með risa blóðbólu á nefinu. Ég tók lokkinn úr og eftir það tók það bóluna tvo daga að detta af!
Ég er með grátt ör eftir götin…. alveg þess virði því þetta er flottasta gat ever!!!!
Ekki sýking eða neitt þannig, en hef einu sinni lent í því að þurfa fara á slysó því að ég ætlaði að fara að setja mótorhjóla hjálm á mig, og er með gat í augabrúnini, og hef alltaf farið varlega, en ég var að flíta mér ,svo að ég skelti hjálminum á mig og reif í helvítis gatið og það blæddi svo mikið að ég gat ekki stoppað blóðið, og það þurfti að setja einhverja grisju rsome svo að gatið myndi ná að jafna sig….
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..