Það gengur illa hjá mér að komast í 18. gatið.
Var með 17, sameinaði svo tvö tunnel þannig þá voru þau 16.
Bætti seinni geirvörtunni í en tók tungulokkinn úr á sama tíma til að geta látið gera það aftur alveg í miðjunni, þannig ég sat enn í 16.
Í dag var ég svo í Tattoo og Skart að láta negla í tunguna aftur, þannig nú stend ég í 17…en er á sama tíma alveg að verða búinn að sameina tunnelin í vinstra eyrnasneppli, svo það dettur aftur niðrí 16, og eftir rúman mánuð verð ég búinn að deila tungunni í tvennt og er þá niðrí 15, nema að ég nái að bæta meiru í í millitíðinni.