Ég ætlaði líka fyrst að fá mér lítið og þá sagði einhver við mig að sumir vildu ekki gera lítil tattoo en ég held að þetta sé meira spurning um að þeir vilji gera tattooin í réttri stærð til að þau njóti sín sem best.
Ég fór á tattoo og skart og jón þór gerði mitt, það er stærra en ég ætlaði í upphafi en ég gæti ekki verið ánægðari.
Ég mæli með því að þú farir þangað því þau voru ekkert nema elskuleg og til í að finna út hvað væri flottast og svona.
Annars er lítið mál að stoppa við á flestum stofum og segja þeim hvað þú ert að spá og heyra hvað þeir segja :)
[quote="Elie Wiesel"]"There may be times when we are powerless to prevent injustice, but there must never be a time when we fail to Protest!."[/quote]