Afhverju í ósköpunum viltu hafa blóð úr þér í krukku og búa til hálsmen úr því.
Í fyrsta lagi að þá þarftu að fara á heilsugæslu/spítala og láta e-h sem er með menntun til þess að taka blóð. Það er ekkert bara að gera gat og safna í glas. Heldur verðurðu að vita hvaða æðar þú mátt stynga í.
Síðan storknar blóð og verður dökkt og ógeðslegt, ekki nema þú ætlir að hafa blóðþynningarlyf í glasinu sem kemur í veg fyrir storknun. En blóðið mun samt eyðileggjast þrátt fyrir það og vera óðgeðslegt, vegna allra þeirra hitasveifla sem það mun lenda í.
Og að lokum að þá er sýkingarhætta út frá blóði mikil. T.d. ef glasið brotnar eða eitthvað í þá áttina að þá getur viðkomandi fengið blóðið þitt á sig og getur fengið smit. Tala nú ekki um það ef þú ert með HIV eða e-h sjúkdóma.
Er ekkert eitthvað að setja út á þig persónulega, heldur myndi ég aðeins pæla í því sem gæti gert, því þó að þetta virki rosalega flott og svona að þá er óábyrgðafullt hjá þér að ganga um með blóð sem gæti verið “smitað” af e-h.