Ég er með hugmynd í kollinum og hefur verið lengi.. langar að fá mér tatto tengdu mér á margvíslegan hátt… Heiti Sædís og er í vatnsberamerkinu og á afmæli 4 feb hvernig get ég pússlað þessu öllu í eitt tattoo…
Má vera þannig að sé mynd af því hvað nafnið mitt þýðir og svona… komið með hugmyndir fyrir mig :)
Hmm.. ég er hugmyndasnauð :( Ég myndi án efa kíkja til flúrara og biðja hann um að teikna eitthvað fallegt upp fyrir mig, tengda þessu öllu =) Get mælt með Búra í þetta verk, hann er rosalegur ;)
neibb, var að kaupa mér myndavél sem ég fæ á mánudaginn kanski geri ég það… en ég fékk mér tattoo á tímanum sem allir fengu sér tribal og kínatákn :P ég fór eftir stofunni og útskýringum á merkjum þar og fékk mér tákn “ár kattarins” sem á að vera árið sem ég fæddist, en svo er ég fædd á allt ö'ðru ári og svo keypti ég bók sem heitir “sympols” og var að fletta henni og sá tattooið mitt sem “héri” hehe! en mér finnst það samt voða flott :P
Ja, þú gætir haft vatnsbera sem væri svolítið líkur álfi(dís) og svo sullast smá vatn úr krukkunni sem hann heldur á fyrir sædís. Vatnsberinn tengist þá stjörnumerki, nafninu þinu og ef þú vilt nákvæman dag þá geturðu sett 4.febrúar fyrir neðan vatnsberan..
já sko, málið er það að þú getur semsagt haft mynd af vatnsbera, og svona tvinnað Sædísi inn í það, skiluru? svona vatnsberi og sædís saman tvö, og svo kemur kannsi 4 þarna inn, og febrúar líka… hlómar allavega vel
uhh, getur fengið þér nafnið þitt í svona rúnum og svo nottla mynd af stjörnumerkinu þínu, bar allt öðruvðisi svoldið stórt og flott, og Svo geturu gert eitthvað með “4Feb” uhm, 04.02.88 heaope
jámm mér finnst það líka, var búin að láta mér dettta það í hug en svo fór ég að spá, það mundi örugglega ekert sjást vel, en í raun þarf það ekkert að sjást voða vel. þetta má ekki vera OF stórt tattoo þannig ef þetta er í fínni stærð þá er fatan náttúrulega lítil og stafirnir sæjust ekkert !
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..