Ég lét Sessu á Tattú og skart gera mitt gat (hún notar nál) og ég fann varla fyrir því.
Ja, auðvitað fann ég fyrir því, en ég hafði búið mig undir svo mikið, mikið verri sársauka en þetta, þetta var svipað og að fá sér gat í eyrað (sneplinn þá).
Auk þess get ég sagt þér að ég er með 10 göt í eyrunum, þau sem ég hef gert með nál hefur aldrei komið sýking í, en þau sem eru gerð með byssu eru sum ennþá að pirra mig.
Bætt við 14. júní 2008 - 19:05
Já og svona by the way.. Vinkona mín kom með mér að láta gera göt í eyrun (helix), og þegar pinninn er komin í gegn sagði hún mér að hugsa um rauða banana xD
Það virkar, ótrúlegt en satt.. tekur hugan frá sársaukanum x)