veistu ég held að það fari bara eftir smekk og hvað þú ert að fá þér.
Ég er bara komin með eitt, ætla að fara aftur í sumar og er að vonast til að Santana geti flúrað mig ef hann verður ennþá hér, veit ekkert hvort hann sé farinn eða hvað.
En þegar að ég fór í vetur fór ég á House of pain og Jason flúraði mig, mér fannst það rosalega fínt,skemmtilegur náungi og hann var duglegur að dreifa huganum mínum með góðu spjalli.
Jón Páll gerir helst bara stór flúr og hannar flest flúrin sem að hann gerir sjálfur hef ég heyrt, hann er rosalega hæfileikaríkur enda er biðin til hans löng, en þess virði, ég myndi ekki hafa neitt á móti því að fá flúr eftir hann einhverndaginn.
ég hef líka bara heyrt mjög góða hluti um Svan á Tattú og Skart, hann er víst fínn náungi en ég hef heyrt að hann sé ekki beinlínis mikill spjallari, en það getur vel breyst, ég hef ekki farið til hans svo ég veit það ekki.
Skoðaðu bara síðurnar hjá flúrurunum, það er listi yfir þá hérna inná /hudflur í linkunum, þar geturu séð verk eftir alla og ákveðið þig þannig hvert þú vilt fara. En ég mæli sterklega á móti því að þú hittir Jónas, ég vil ekki vera leiðinleg eða neitt en ég hef bara persónulega séð svo mörg slæm flúr eftir hann og heyrt að húsið hans sé ekki alltaf alveg jafn hreint og snyrtilegt og það ætti að vera miðað við það að hann sé að flúra þarna.