Það er oft erfitt að koma hvítum lit í húðina og þarf stundum að fara oft að fylla í. Hvítur sést náttúrlega ekkert voðalega vel nema að hann sé með öðrum litum. Ég persónulega ímynda mér að þetta sé ekkert voðalega flott. En láttu vaða ef þú hefur áhuga :) Það er auðvelt að covera hvítan ef þú verður ekki ánægður seinna mei
Ef að þú ert með mjög föla húð þá er hvítt algjörlega málið. Ég á vinkonu sem ég fékk til þess að fá sér hvítt og það kemur ekkert smá fallega út. hún fór til Jóns Páls og hann sagði henni frá kostum og göllum hvíts húðflúrs. Hér er ein mynd: http://img329.imageshack.us/my.php?image=bmepb404673pp4.jpg
Ég er einmitt líka búin að vera að gæla við að fá mér hvítar rúnir. Ég er reyndar dökk sko þannig að það sæist eflaust betur… en miðað viið myndina sem einhver setti inn kemur þetta merkilega vel út
Þú verður að átta þig á því að ef að þú ert með dökka húð þá getur hvíta blekið orðið hálf gul leitt. Það er náttúruleg þunn húð yfir blekinu og ef það er mikið af melaníni gengur það eiginlega ekki. Til dæmis það er ekki möguleiki fyrir þeldökkt fólk að fá sér alhvít flúr. Þetta er að sjálfsögðu þín ákvörðun en farðu og talaðu við flúrarana, þeir ættu að vita hve hörundsdökkur maður getur verið áður en það verður hlandgult.
Já ég veit, ég er með hvítan lit í tattooi sem ég er með sko, hann kemur alveg hreinn, ég er búin að ræða viðð flúrara og allt það dæmi, þetta er samt enn bara hugmynd
þú ert einmitt fullkomin manneskja til þess að fá sér svona flúr. Nei þetta myndi ekki sjást svo ægilega mikið en þar liggur einmitt galdurinn, mér finnst lang samlega flottast persónulega að hafa stórt og mikið “lacework” sem að maður tekur ekki eftir alveg fyrst en síðan þegar maður fær að skoða aðeins betur kemur svona nau…. nauuuuu moment.
Reyndar er myndin ekki af henni heldur er þessi mynd af BME. Hins vegar er myndaserían af þessari ungu dömu það sem að kom þessari vinkonu minni í það að fá sér hvítt flúr. Ég veit ekki hvort ég má sýna restina af myndunum, þar sem að þar er sýnt brjóst og geiró og ég veit ekki hvort fólk myndi skíta á sig út af þeim, þær eru hins vegar mjög flottar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..