Þetta kostar 9000 kall í Tattoo og Skart. Algengasti aldurinn? Ég get nú ekki mikið sagt um það, ætli það sé ekki mest töff að fá sér það þegar maður er 13-15 ára, en ég legg til að það sé ekki fengið sér það fyrir 18 ára aldur, því þetta skilur eftir sig vel sýnilegt ör. Þetta er ekki beint “vinsælt”, þetta er enn frekar taboo eins og flest andlitsgöt, en mörgum finnst þetta alveg ógisslega töff skiluru.
Allavega, þá var ég með snakebite fyrir nokkrum vikum, þau voru farin að pirra mig alveg ósegjanlega samt og ég tók þau úr. Ekki fá þér snakebite nema þú sért til í 6 mánuði af sársauka og pirring. Svo eftir það er það aðeins minni pirringur, en þetta er alltaf í tönnunum á þér ef þú ert með pinna, og þetta gerir varirnar á þér örlítið viðkvæmar.
Mér finnst persónulega snakebite mjög töff.