Það er ekki vont að láta gata en það er vont dagana eftir því að tungan bólgnar. Bara éta súpu og skyr og annað fljótandi fæði og taka bólgueyðandi verkjalyf, eins og t.d. íbúfen.
Annars mæli ég með Sessu á Tattoo og Skart. Hún gataði mig og stækkaði götin líka og mér finnst hún bara mjög góður gatari og ég treysti henni best til þess.
Mér fannst það vont. En dagarnir eftir á pirruðu mig ekki svo mikið og ég var ekkert ofsalega aum. Það eina sem pirraði mig var bólgan og hvað ég var fjári lengi að borða. Ég gat borðað allt sem mér datt í hug og nennti engu svona fljótandi veseni
Ég mæli með Sessu á Tattoo & Skart því hún er æði og ég hef bara haldið mig við hana,
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..