Mig langar svakalega að mæta núna, hugsa að ég fái mér nú samt ekki flúr þar sem ég er með ákveðna reglu um að fá mér ekki flúr rétt fyrir eða yfir sumartímann svo maður geti nú farið í sund, spókað sig í sólinni og svona:)
Það er geðveikt að láta flúra sig á svona ráðstefnu… Allt er e-ð svo öðruvísi. Eins og þegar ég fékk mér drekann á ristina 2006, mér fannst það svo agalega vont (var gráti nær) en hélt samt andliti allan tímann.. Hefði ég verið á stofu þá er ég viss um að ég hefði hætt við! Haha. Allt önnur upplifun
Skil þig. Ég fékk mér einmitt á líka á ráðstefnunni 2006 hjá gaur sem heitir Patrick Swan. Var með hugmynd að flúri, en ég ákvað að hætta við hana og fá mér annað í staðinn. Veit að Svan langaði að gera myndina sem ég hætti við og vona að hann verði hrifinn af þessari líka, og það tekur mig smá tíma að safna fyrir svona stóru flúri (þetta verður back piece) þannig að ráðstefnan er frábær hugmynd að mínu mati.
Heilbrigðiseftirlitið skemmdi fyrir mér að ég fengi flúr þarna í fyrra en núna er ég 18 þannig allt í gúddí, vona að Jason June verði aftur annars er það Búri, sem minnir mig á það að eftir rúmlega viku fer í tíma til hans að klára half sleeveið mitt, jibbí
Hehe já ég get talið mig heppna! ;) Hann ætlar að gera full sleeve, hægri hendin verður þakin í floral stíl og ég býst við að allar útlínur verði kláraðar í fyrsta sessioni :/ Ég HAAAATA helvítis útlínunálina! En sársaukinn verður þess virði, biðin líka. Bókaði tímann hjá honum í byrjun des.
Minnir að það sé ekkert aldurstakmark inn nema þá seint á kvöldin ef það er eitthvað partý eftir á. En það er auðvitað aldurstakmark í flúrin. 18.ár :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..