Ég er með 7 flúr. Nafn yngsta bróður míns vinstra megin á brjóstkassanum (yfir hjartanu), gaur sem er búinn að hengja sig og með skilti um hálsinn sem á stendur “you can't fire me I quit” á vinstri upphandlegg, afskorinn litla putta í tutu/ballett pilsi og með borða yfir sér sem á stendur “Pinky” á innanverðum vinstri framhandlegg, stjörnumerkið mitt á innanverðum hægri framhandlegg, “Einn kaldan takk” skrifað í rúnum á hægri úlnlið (þar stóð áður “Alda” sem er nafnið á minni fyrrverandi, en við hættum saman og ég þurfti að breyta því þá. Finnst þetta frábær redding), “hate” skrifað í rúnum á puttana á hægri hendi og mynd af úlfi sem er að spangóla og fæðingardag og dánardag eins besta vinar míns á hægri fæti.
Og auðvitað stefni ég á fleiri. Er búinn að ákveða að fá mér verk yfir bakið. Ætla að fá mér mynd af Neró standandi á hæð efst á bakinu og fyrir neðan verður Róm brennandi.