Hæhæ ég var að spá hvar væri hægt að láta gera jurta tattoo, langar geðveikt í tattoo og foreldrar mínir eru að spá í að leyfa mér að fá jurta tattoo:)
ég var sko að spá í að fá mér e'ð sem að er bara einn litur og svo láta fara í það aftur seinna:) en veit e'r hvar er hægt að fá sér jurta tattoo? takk samt fyrir ráðið
nei mér var sagt að bíða með það því það er svo rosalega upphleypt… ég vona að ég geti farið ofaní það bráðlega. Mér þykir enn voða vænt um myndina sem ég er með, enda var ég ákveðin um hana mörgum árum áður en ég fékk það loksins. En, sé eftir að hafa ekki fengið mér bara the real deal!
Að mínu mati ætti að banna að gera jurtatattoo sem myndir. Allt í lagi að nota þetta sem förðunartattoo (augu, augabrúnir, varir) en þetta er aldrei flott sem mynd. Ég var með svona, það varð grátt eiginlega um leið og bara rosalega ljótt…
Bíddu frekar þangað til þú mátt fá alvöru, við erum ekkert að grínast :) Og þótt þú segist vilja fara ofan í þetta seinna meir þá er ekkert öruggt að þú viljir hafa þessa mynd á þér að eilífu? Plús það að þú ert að eyða helmingi meiri pening þegar uppi er staðið.. Jurtatattoo eru ekkert ódýrari en alvöru og eru gerð af snyrtifræðingum sem eru ekki með húðflúrsþekkingu
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..