Hæ, þetta er örugglega spurning sem svona trilljón manns hafa spurt. En ég er að spá í að fá mér tattú á hægra herðablað, var bara að spá hvort einhver ykkar hefðu fengið ykkur þar og hvort það var of vont?

Ég hef lengi verið að ákveða nokkur tattú en aldrei getað ákveðið mig hvar, en mér finnst þetta frekar töff staður. Ég er frekar kvíðin um hvort þetta verði of vont..

Ég er samt með scarificiation á mjóbakinu mínu, það var fokking vont en ég meikaði það. Er einhver hér sem hefur fengið bæði tattú og scarification og getur gert greinarmun þar á milli? Semsagt bera sársaukan saman?

Takk fyrir

Bætt við 20. september 2007 - 10:08
Líka, er einhver flúrari sem þið mælið með? Kærastinn minn er með þónokkur tattú eftir Vincent og þau eru öll mjög flott. Spá í að fara til hans, en af því að þetta er mitt fyrsta tattú þá þætti mér vænt um að fá einhver álit.