Mig langar ótrúlega mikið í dreka, eftir hann Colin Dale, sem hringar sig utan um vinstra lærið. Ég er svo ótrúlega hrifin af stílnum hans og myndi vilja svona til að setja punktinn yfir i-ið hafa drekann allan eða amk að hluta til handstunginn (e. hand-poked). (sjá www.tattoo.dk)
Svo er vinur minn að fá sér back piece eftir Jón Pál sem er svo sjúklega flott að ég bara kikna nærri því í hnjánum þegar ég sé það. Þannig að mig myndi líka langa í eitthvað eftir hann, en ég er ekkert komin lengra með þá hugmynd.
Þar sem að peningar vaxa ekki á trjánum (damn!) og þessi tvö tattoo yrðu frekar stór er þetta svona á tíu ára planinu frekar heldur en að þetta sé eitthvað að fara að gerast á næstunni. En ég er allavegna alveg pottþétt á að ég fæ mér dreka frá Colin Dale næst :)