Ertu ekki 17 ára? Ertu þá eitthvað búin að læra götun eða ertu að fara að læra það? Þú afsakar en mér finnst bara skrýtið að 17 ára stelpa sé að fara að gera surface göt :P (Þótt það sé eftir ár). Ég er alls ekki að reyna að vera leiðinleg eða neitt :)
Ég mæli með að þú sparir peningana þína og notir þá í eitthvað betra vegna þess að ég hef heyrt að svona skólar séu bara crap….kærastinn minn og ein vinkona okkar voru að pæla í að fara akkurat þangað en hættu við af því Sessa sagði að hún hafi farið í svona og lærði ekkert þar. Flestir segja að þú lærir mest af því að vera lærlingur hjá atvinnu gatara.
Nei og hef heldur engan áhuga á því. Vera einsog stelpan sem er núna að læra hjá Sessu, og vinkona hennar fór að auglýsa það á Huga að hún væri svo stressuð að gata að hún klúðraði því? Frekar bara gera þetta almennilega, og geta svo komið aftur heim á Klakann ef mér lýst ekki á þetta þarna úti.
Mér finnst bara krúttlegt að hún hafi verið stressuð. ;) Gerir hana ekkert að verri gatara þó hún hafi klúðrað fyrsta skiptinu sínu :) Ég meina þú ferð ekki bara á námsskeið og þá er allt í lagi og allt stress farið ;) Ef ekkert gengur úti ætlarðu þá bara að opna stofu hér og byrja að gata? Án þess að hafa verið að gata hér heima undir umsjón viðukennds gatara? Besta æfingin er að vera hjá einhverjum sem kann það, ekki bara fara á námsskeið.. Maður verður að afla sér trausts, fá ráð ef e-ð er ekki að virka o.s.frv. Ætlarðu að vera á einhverri stofu þarna úti að læra?
Kemur bara í ljós. Ég á örugglega ekki einusinni eftir að vinna við þetta, veit bara ekki hvað ég á að gera eftir stúdentinn, nenni ekki í háskóla strax og langar að prófa að læra eitthvað sem ég hef áhuga á.
Ég var bara að pæla í því vegna þess að nokkrar stelur sem ég þekki fengu sér naflagat á T%S og lýstu þeirri sem gataði þær svona. Ég var bara forvitin að vita hver það hafði verið :)
Ég spurði Sessu um þetta og hún getur gert surface göt en hún gerir það helst ekki af því hún er ekki ennþá komin með réttu tólin. En hún var að tala um að hún muni fara að gera þau þegar hún fær tólin til að sérsmíða lokka fyrir þetta og svona. Annars mælir hún frekar með að maður leiti til manneskju með reynslu og sem getur smíðað lokkana. Ég hlakka mjög til að Sessa fari að gera surface göt :P Minns langar í
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..