Er einhver búinn að sjá þessa mynd?
Ég fór á hana í bíó um daginn og kom út af henni ennþá ákveðnari með allt sem ég er búin að ákveða að láta gera við mig. S.s. gata, flúra, teygja og svona.
Höfundar þessarar heimildarmyndar köfuðu dýpra en nokkur hefur áður gert ofan í þá undirheima sem snúast um alls kyns öfgafulla erótíska tilraunastarfsemi, líkamsbreytingar, kynskiptiaðgerðir og hardcore masókisma. Myndin er sláandi og sjokkerandi ferð til ystu endimarka þessarar veraldar og segir á opinskáan hátt frá öfgafyllstu hugmyndum sem menn hafa fengið varðandi sinn eigin líkama. Það skal tekið fram að myndin er alls ekki við hæfi viðkvæma.