Þú getur t.d. keypt sótthreinsandi vökva í blárri flösku hjá Sessu sem heitir BPA (Body Piercing Aftercare) til þess að hreinsa gatið. Ég hef notað það með næstum öll götin mín.
Þá notarðu bara dropateljarann í lokinu til þess að láta vökvann drjúpa á allar hliðar á eyrnapinna og hreinsar svo bara í kringum lokkinn.
Hinsvegar eru fleiri efni sem þú getur notað, t.a.m. vetnisperoxíð. En ég veit ekki mikið um það, þá væri sniðugt að tala við PraiseTheLeaf eða einhvern annan.