ég verð að segja að ég sé sammála PTL, þú ert 14 ára og áður en þú ríst á afturfæturnar og ferð að öskra eins og ljón þá verðurðu að hafa það í huga að við sem erum að reyna að ráðleggja þér höfum verið ungt sjálf og eru að reyna að miðla okkar reynslu af því svo að þið þurfið ekki að brenna ykkur á öllu sjálf, ég sé það núna þegar ég er orðinn fullorðinn að ég hefði mátt hlusta oftar.
Varðandi það að fá sér einhverja brutal vængi á bakið 14 ára þá efast ég um að nokkur húðflúrari mun gera það fyrir þig. Þetta er of stórt verk til að gera á svona litla kroppa, síðan verðurðu að átta þig á því að svona stórt verk er erfitt og lengi gert, það getur þýtt allt upp í 4 session og verðið er eftir því, ekki má heldur gleyma því að það er ekkert grín að láta svona stórt verk gróa, ég varð alvarlega minntur á það þegar ég gat ekki sofið í amk eina nótt eftir síðasta session.
Eftir allt saman er þetta þó að sjálfsögðu þitt val en eftir þetta er ekki aftur snúið en þangað til þá hefirðu allan tímann í heiminum til að hugsa málið.