-Einn þarna minnist á Rites of Passage sem ég get hiklaust mælt með. Þar eru tveir flúrarar, Alex og Jan en þann fyrrnefnda þekkja flestir sem hafa áhuga á húðflúrum því hann er tíður gestur hjá Svani á tattú og skart. Ég hef gengið þar inn í tvígang og fengið tíma ASAP því Alex elskar Ísland og Íslendinga, en hann verður samt að vera spenntur fyrir að gera myndina.
-Einnig er Colin Dale í borginni en hann er frábær í keltneskum, víkingaflúrum og frumbyggjatræbölum.
- Svo er ein stofa sem ég leit einu sinni inn á rétt við Strikið, þar er stelpa að flúra sem var svaka fær. Sú stofa er við hliðina á Múffe og hans mönnum á " copenhagen body extremes" og virtist vera lítið mál að panta tíma með litlum fyrirvara.
Engu að síður mæli ég með að þú gúgglir þessar stofur, finni þér flúrara sem þú fýlar og passar fyrir stykkið þitt, og sendir þeim meil…
Gangi þér annars bara vel!
______________________________________