gæti verið ég :) ég er með 5 tattoo… 4 jurta og 1 alvöru og mér finnst jurtatattooin vera frekar blá :S þau eru ekkert klesst eða neitt þannig, ennþá jafn skýr en liturinn er mjög blár.. ég fékk fyrstu 2 tattooin árið 2000. svo annað 2001 og annað 2003 og svo alvöru útá spáni 2005.
ég fann engan mun á sársaukanum, mér fannst það veramjög svipað, fer líka allt eftir staðsetningunni. þessi tattoo eru öll þannig að þau sjást ekki nema ég sé fáklædd ;)
ég var 16 þegar ég fékk mér fyrsta tattooið og ég er ekki sátt við þau í dag! ég vil helst láta einhver önnur alvöru yfir og mun líklegast gera það seinna, því þau eru greinilega ekkert að fara .
svo ég segi … bíða með þetta þangað til að þú ert eldri. ég var alveg á að ég vildi þessi tattoo þá en í dag er það annað mál. ég er bara fegin að ég hafi ekki fengið mér neitt gróft ( þar sem ég var hálfgerður mansonisti) því þá væri það mjög asnalegt að vera með einhverja hauskúpu í dag, því ég er gjörbreytt.