Já eins og kom áður fyrr þá var ég að pæla hvar þið fýlið (er það ekki með ý?)ekki göt?^^
Ég fý/íla ekki bridge (heitir það ekki það á milli augnanna?), augnabrúnina og kynfærin Finnst líka ekki flott þegar fólk er með gat á milli augnanna og gat í nefið eða á e-h öðrum stað í andlitinu
Neineineineineinei það er fíla:) Annars.. tja ég veit ekki alveg. Mér finnst sum göt ekki fara öllum jafnvel, eins og augnbrúnagat. Það getur gert suma að trukkalessum(stráka og stelpur) en sumum fer það geðveikt vel.
Fer allt eftir fólki, þykir td. gat milli nasanna alls ekki flott á stelpum, venjulegt gat í lobe hjá strákum er ekki flott að mínu mati (gildir annað um tunnel, þau er flott).
það fer allt eftir manneskjunni sjálfri, en á mér persónulega fíla ég ekkert í andliti nema madonnu, eyra vil ég bara targus (er með venjuleg lobe) svo er það bara komið það sem ég fíla, nema kanski í naflan, kanski ég fái mér einhverntíman aftur þar… annars hef ég aldrei séð neinn sem fer vel að vera með septum (að mínu mati :)
Það er voðalega misjafnt eftir manneskjum… Sumum fer alveg hræðilega að vera með andlitsgöt en aðrir bera þau vel. Augabrúnagat finnst mér oftast ekki flott hjá neinum.. Bridge fer mjög fáum og þá sérstaklega ekki strákum.. Bling bling lokkar í eyrum hjá karlkyninu finnst mér alveg ótrúlega ljótt og hallærislegt! Mjög fáir karlmenn bera venjuleg lobe göt vel.. Sérstakar týpur sem geta það að mínu mati. En tunnel finnst mér flott ef þau eru í báðum eyrum. Hmm… Of mikið af götum finnst mér heldur ekki flott nema á sérstökum týpum. Man ekki eftir neinu fleiru í augnablikinu.
Mér finnst engin göt ljót…allavega ekki sem ég man eftir… Hins vegar er misjafnt hvaða göt fara fólki. Ef gatið fer manneskjuni sem er með það ekki vel, þá getur það verið ljótt
erfið spurning :) eg fýla ekki augnabrúnagöt finnst það ekkert æðislegt .. annars finnst mer það bara fara eftir manneskjunni sem að ber það .. hef seð fullt af fólki t.d með bridge sem að fer þeim ótrúlega vel en þetta er ekki e-h sem að eg gæti hugsað mer að vera með :)
Maddonna, medusa, snakebite og hvað heitir það… eins og hálft snakebite? Það finnst mér ekki kúl. Gat í vör, miðjunni semsagt getur verið helv. flott, en fer ekki öllum. Göt í nefi fara ekki öllum, til dæmis myndi ég ekki fá mér þannig. En hjá sumum er það mjög flott.
Ég er ekkert hrikalega spennt fyrir lobe á strákum, nema það sé tunnel.
smiley og bridge. Bridge getur alveg verið flott en samt á mjög fáum og bling á strákum er ekki flott. Hinsvegar finnst mér alveg flott ef þeir eru með lobe með svona gaddalokkum=] Einn vinur minn á þannig lokka og ég ætla að stela þeim^.^
Ég fýla svona eiginlega flest öll göt, nema þegar þau eru OF mörg saman. Mér finnst meira að segja sum kynfæra göt mjög nett.
Ég ber samt ekki of ‘'gróf’' göt ( Gadda og svona, eins og snake bite sem er búið að setja gadda í og þannig) Meira svona tungan eða eithvað þannig. :P
Það fer samt bara svo mikið eftir fólki hvernig lokkar fara því vel. :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..