Mitt var gert með nál.
“Var það sárt” er heimskuleg spurning. Auðvitað er það vont, það er bara mismunandi HVERSU vont. Þú munt aldrei vita hversu vont það var af reynslu annarra. Hættu að vera aumingi og gerðu það bara.
Tattoo og Skart er vafalaust besti staðurinn. Ég hef alltaf farið til Sessu, og götin mín eru ÖLL flott, greru vel og hún er einstaklega góð í að valda sem minnstum sársauka. Hún er samt mjög hörð á aldurstakmarki, svo að ekki einu sinni reyna að komast í gegn ef þú ert ekki 18 ára.
Það er best ef þú kaupir sótthreinsandi hjá Sessu, það virkar ótrúlega vel, það er þægilegt og ágætis lykt af því líka. Það kemur með svona dropamæli þannig að þú þarft ekkert að hafa áhyggjur af einhverjum pappírsdruslum eða bómul.