Já var að fá mér 2 ný göt, eða fékk þau fyrir svolitlu síðan eða 2 vikum tæplega, ættlaði að senda inn mynd með en myndvélin gaf sig. :P

En allavega þá fékk ég með antihelix hægra megin og síðan þriðja lobe-ið vinstra megin. Þau voru gerð með byssu á snirtistofu á Egilsstöðum, þau hafa gert 3 önnur í mig og allt vel gert og engin sýking komið þannig ég treysti þeim alveg. :)

Það eru s.s. komin 3 hvoru megin, 3 lobe vinstra megin og 2 lobe og antihelix hægra megin.. Síðan núna á næstunni, kannski núna um helgina eða næstu kemur industrial í vinstra og tragus í hægra. ;) Hlakka ekkert smá mikið til sko! :P

Sendi kannski inn mynd seinna. :)

Og svona því ég er að skrifa kork, haldiði að það sé ekki að verða allt í lagi að skipa um lokka?