Ég ráðlegg þér að fara á allar stofurnar og kynna þér þær sjálfur… Þú munt fá endalaust af svörum hér um hinar og þessar stofur og það mun sennilega ekkert hjálpa þér… Svo eru margir sem halda sig alltaf við sinn flúrara þótt að aðrir séu jafngóðir sem dæmi..
Stofurnar eru ekki margar og allar á sama svæði og í göngufæri frá hvorri annarri. Gerðu þér ferð í bæinn, spjallaðu við flúrarana, fáðu að skoða ljósmyndir af verkunum þeirra, skoðaðu umhverfið o.s.frv. Tekur ekki langan tíma og þú munt finna þína réttu stofu og þá sem þér lýst best á :)
Stofurnar í Rvk eru eftirfarandi:
House of Pain (Sverrir Tattoo og Jason Thompson) - Laugavegur 45. Sími: 555-4015 og 896-2323
Tattoo69 (Vincent) - Laugavegur 69. Sími: 822-8288
Íslenzka húðflúrstofan (Jón Páll og Búri) - Hverfisgata 39. Sími: 552-7913
Tattoo og Skart (Svanur) - Hverfisgata 108. Sími: 552-7800