Sko, ég var held ég 14-15 ára þegar ég ákvað að fá mér gat í vörina.
Ég var skjálfandi á beinunum og í stresskasti þegar ég kom inná tattoo og skart. Nefninlega hafði ég fengið göt í eyrun og fannst það hræðilegt! Ég hafði líka bara fengið að heyra neikvæðu hliðarnar á líkamsgötum en var samt staðráðin í að fá mér gat.
Sessa gerði þetta ekkert smá vel og ég fékk aldrei sýkingu í gatið. Af þeim götum sem ég hef fengið mér (sem eru 7) finnst mér langverst að fá í eyrun. :P