Hvernig er það ef mann langar í tattoo á ákveðinn stað en maður er með stórt eða mörg ör þar? Er alveg hægt að flúra yfir það eða verður það bara ljótt? Verður það eitthvað mislitt eða svoleiðis?
Ég held það væri bara sniðugt fyrir þig að fara til eins sem að er klár að gera tattoo og láta hann meta það fyrir þig hvort að það virki að fá sér tattoo yfir þetta ör eða ekki ;)
Jamm, ég var svo skörp að gleyma að spurja í dag, ég var á House of Pain =Þ Kærastinn minn var að fá sér tattoo hjá Sverri… Þetta bara datt útúr hausnum á mér :/
Sverrir hefur verið að flúra yfir ör með góðri útkomu og einnig hefur hann verið að laga húðslit.. Þú getur séð “fyrir og eftir” myndir á stofunni hans :) Ég myndi tékka á honum
Jamm mér líst vel á Sverri…hefur nýlega tattooverað kærastann minn og Jason vinkonu mína og það var flott sko… Hann bauðst líka til að laga vængina sem að kærastinn minn er með sem Svanur gerði á hann…þeir eru mislitir :S Annar vængurinn er miklu dekkri en hinn… Sverrir tók eftir því og bauðst til að laga þá ef Svanur gerði það ekki
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..