Jæja vinkona mín var að hugsa um að fá sér gat í naflann og virðist vera mjög spennt fyrir því hehe, en hún var að pæla hvort þetta væri vont? Hún er að æfa mark getur þetta rifnað úr? Og síðast en ekki síst grær þetta ef hún tekur lokkinn úr?
Er þetta vont: Já sumir segja að fá sér gat í naflann sé verra en önnur göt. Ég er ekki og hef aldrei verið með gat í naflanum en þetta er bara það sem ég hef heyrt frá öðrum. Getur þetta rifnað úr afþví hún er æfa mark: Ég held að það sé ekkert meiri hætta bara útaf því. Þetta gat getur alltaf rifnað úr (lítil hætta samt) ef það flækist í fötum o.s.frv. En ef hún er e-ð hrædd um þetta þegar hún fer á æfingar þá getur hún kannski sett plástur yfir lokkinn rétt á meðan? Veit um stelpur sem hafa gert það. Grær þetta ef hún tekur lokkinn úr: Já, öll göt gróa en skilja e.t.v. eftir sig ör. Eftir hversu langan tíma götin gróa er einstaklingsbundið.
Já þetta er vont.. munurinn á að gata á sér vörina og naflann var svakalegur hjá mér, ég fann einsog það væri bara verið að sprauta mig eða skára en það í vörina en með naflann var bæði vont þegar hann stakk og svo verra þegar hann setti lokkinn. Það er samt mjög mismunandi, sumum finnst þetta ekkert mál og öðrum finnst þetta ótrúlega sárt.
það er mjög persónubundið…ég er með gat í naflanum[hef fengið mér 2x] og fanst það alls ekki slæmt, bara stingur og búið. svo það er erfitt að segja til um hvað vinkonu þinni muni finnast. ég hef heyrt sögur af fólki sem fanst voða vont að fá gat í nefið..en fyrir mér var það peace of cake!:)
Að fá gat í nefið er samt allt öðruvísi en að fá td í augabrún vegna þess að það er stungið í gegnum brjósk.. Sumir eru með mjúkt brjósk að eðlisfari og finna því kannski ekki mikið fyrir því en ég er nú bara fræg fyrir að vera með þykk brjósk bæði í nefi og eyrum og það var svolítið mál að koma nál og lokk þar í gegn.. En hafðist samt! Haha.. Kannski ert þú ekki viðkvæm fyrir sársauka fyrst þér fannst peace of cake að fá í nafla og nef, sem er náttúrlega ekkert nema gott ;)
Bæði mér & öllum vinkonum mínum sem hafa fengið sér gat í naflann hafa fundist það ekkert vont .. Það versta er töngin sem er klemmt utan um naflann þar sem a að gata .. Já það grær ef hún tekur hann úr, hún má ekki taka hann út fyrstu 3.mánuðina minnir mig. Veit ekki með hitt :)
er þetta væri vont?já þetta er vont eins og öll önnur göt en samt ekkert svo smá sárt á meðan nálin fer í gegn því það er svo þykkt skinn þarna á milli Hún er að æfa mark getur þetta rifnað úr? nei ég held að þetta ætti ekki að rifna ein eins og PraiseTheLeaf sagði þa´er sniðugt að setja plástur fyrir þegar hún er á æfingum grær þetta ef hún tekur lokkinn úr?já þetta grær eins og öll önnur göt en það gæti tekið frekar langan tíma fyrst safnast bara þunn himna yfir…
Ef þér lýst ekki á það sem þú sérð hættu þá að horfa…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..