Þegar ég lét gera mitt fyrir 5 árum (fokk, ég er orðin gömul) þá kostaði það 5000kall hjá JP. Ég var nú ekkert smámælt, en ég bólgnaði alveg heilan helling því ég fékk sýkingu (sem mjög fáir fá, ég veit ekki um neinn annan en mig). Svo fer alveg eftir hvar gatið er staðsett hvort þetta truflar þig þegar þú talar eftir að bólgan fer, ef það er mjög framarlega getur hann þvælst fyrir þér (og einnig skemmt í þér framtennurnar ef lokkurinn liggur utan í þeim á meðan þú sefur)
Hjá mér blæddi elveg furðulega lítið, bara rétt eins og ég hefði skorið mig á sleikjó.
En mundu bara að ef þú verður mjög bólginn og slappur og færð hita og verk í hálsinn eins og þú sért með hálsbólgu farðu þá uppá læknavakt og fáðu pensilín strax! Það getur víst verið stórhættulegt að fá sýkingu í tunguna því maður getur auðveldlega fengið blóðsýkingu og það er afar stutt uppí heila frá tungunni þinni :)
-Það er snákur í stígvélinu mínu